Daglegar rútuferðir í Landmannalaugar
sumar 2024
Í sumar geta gestir okkar nýtt sér daglegar rútuferðir í Landmannalaugar með Trex. Boðið verður upp á daglegar ferðir frá Reykjavík til Landmannalauga með viðkomu á Landhótel til að sækja gesti okkar. Í Landmannalaugum eru margar fallegar stuttar gönguleiðir og toppurinn er að baða sig í einni fallegustu náttúrulaug landsins. Þetta er kjörið tækifæri til að eyða deginum í Landmannalaugum með rútu til og frá Landhóteli.
Tímaáætlun með Trex
Vinsamlegast smelltu á þennan hlekk til að fara á heimasíðu þeirra og sjá tímatöflu þeirra. Þar er hægt að kaupa rútumiða eða sendið þeim tölvupóst á info@trex.com