Heilsulind

Slökun eftir viðburðaríkan dag

Gufubað, heitur pottur og líkamsræktarstöð

Í heilsulindinni eru tvær sánur, önnur innrauð og hin finnsk. Utandyra er heitur pottur með útsýni til fjalla, þar sem þú getur slakað á og notið umhverfisins. 

Allir hótelgestir hafa aðgang að líkamsræktarstöðinni, sem er búin tækjum og lóðum. Hér geturðu sameinað hreyfingu og slökun meðan á dvölinni stendur. 

Opnunartími

Heilsulindin er opin daglega 16:00 - 22:00. Aðgangur að sánu og heitum potti er keyptur í móttökunni og notkun baðslopps er innifalin í gjaldinu. 

Heiti potturinn getur verið lokaður tímabundið á veturna vegna kulda og vinds. Hafðu samband við móttökuna til að fá upplýsingar um aðgengi hverju sinni. 

Líkamsræktarstöðin er opin daglega 09:00 - 22:00.

Slökunarnudd

Við bjóðum upp á slökunarnudd sem panta þarf með 1 - 2 daga fyrirvara. Fyrir upplýsingar um lausa tíma og verð skaltu senda tölvupóst á booking@landhotel.is.