Persónuverndaryfirlýsing Landhótels

Með persónuverndaryfirlýsingu þessari er greint frá því hvernig Landhótel stendur að skráningu, vistun og miðlun persónugreinanlegra upplýsinga um einstaklinga sem hafa bókað sig á hótelið eða skráð sig á póstlista þess. Yfirlýsingin nær persónuupplýsingar sem skráðar hafa verið þegar einstaklingar:

  • bóka og dvelja á hótelinu
  • skrá sig og mæta á viðburði sem haldnir eru á hótelinu
  • hafa samband við hótelið í gegnum tölvupóst, síma eða samfélagsmiðla
  • skoða heimasíðu okkar
  • skrá sig á póstlista Landhótels

Persónuvernd er Landhóteli mikilvæg

Öflug persónuvernd er Landhóteli mikilvæg og er lögð áhersla á að virða réttindi einstaklinga og að öll meðferð slíkra upplýsinga sé ávallt í samræmi við gildandi persónuverndarlög á hverjum tíma og í samræmi við bestu venjur í hótelrekstri.

 

Hvaða persónuupplýsingum safnar Landhótel um þig og hver er tilgangurinn með söfnuninni?

Landhótel leggur áherslu á að skýr tilgangur sé á bakvið söfnun þeirra persónuupplýsinga sem nauðsynlegar eru í samræmi við þann tilgang sem liggur þeim að baki.

Landhótel safnar, eins og við á hverju sinni,  einkum eftirfarandi persónuupplýsingum:

  • auðkennis- og samskiptaupplýsingum, s.s. nafn og kennitala, heimilisfang, þjóðerni, tölvupóstur, símanúmer
  • fjármálaupplýsingum, s.s. korta/greiðsluupplýsingar
  • upplýsingum í tengslum við bókun og dvöl, s.s. bókunarnúmer, herbergisnúmer, undirritun, séróskir, t.d. í tengslum við mataræði, tímasetning og lengd dvalar
  • samtölum í gegnum samfélagsmiðla
  • myndefni úr upptökum eftirlitsmyndavéla á hótelinu
  • öðrum upplýsingum sem gefnar eru varðandi hverja bókun 

Landhótel vinnur persónuupplýsingar einkum í þeim tilgangi að:

  • afgreiða bókanir og sjá um dvöl gesta á hótelinu
  • undirbúa og sjá um viðburði sem haldnir eru á hótelinu
  • stunda markaðssetningu og framkvæma greiningar
  • sinna eigna- og öryggisvörslu, t.a.m. í gegnum eftirlitsmyndavélar
  • bregðast við fyrirspurnum, kvörtunum og lofi frá einstaklingum
  • panta ferðir fyrir einstaklinga hjá tilgreindum afþreyingarfyrirtækjum sem bókaðar eru í gegnum hótelið

  

Lagalegur grundvöllur fyrir söfnun upplýsinga

Landhótel safnar og vinnur persónuupplýsingar byggt á eftirfarandi heimildum:

  • Til að uppfylla samningsskyldu. Þessi heimild á einkum við þegar einstaklingar bóka dvöl á hótelinu.
  • Til að uppfylla lagaskyldu. Þessi heimild á einkum við í tengslum við gögn sem falla undir bókhaldslög.
  • Til að vernda lögmæta hagsmuni hótelsins. Þessi heimild á einkum við í tengslum við myndavélaeftirlit á hótelinu í eigna- og öryggisvörsluskyni, ásamt innheimtu vanskilakrafna.
  • Á grundvelli veitts samþykkis. Þessi heimild á einkum við í tengslum við markaðsefni sem við sendum einstaklingum sem veitt hafa samþykki sitt fyrir slíku. Einstaklingum er ávallt heimilt að draga samþykki sitt til baka, en einstaklingar geta af skráð sig af póstlista með því að smella á hlekk sem finna má neðst í slíkum póstum. Afturköllun samþykkis hefur þó ekki áhrif á vinnslu sem átti sér stað á meðan samþykki var til staðar.

 

Hversu lengi geymum við persónuupplýsingar um þig?

Landhótel geymir persónuupplýsingar í þann tíma sem nauðsynlegur er til að uppfylla tilgang vinnslunnar eins og greint er frá honum hér að ofan. Sem dæmi er þeim upplýsingum sem verða til í gegnum myndavélaeftirlit eytt innan tveggja vikna. Þær upplýsingar sem teljast til bókhaldsgagna eru geymdar í sjö ár samkvæmt bókhaldslögum nr. 145/1994.

  

Hvenær miðlar Landhótel persónuupplýsingum þínum til þriðja aðila og af hverju?

Landhótel selur ekki undir neinum kringumstæðum persónuupplýsingar um þig. Landhótel miðlar einungis persónuupplýsingum til þriðja aðila þar sem slíkt er skylt samkvæmt lögum.

Landhótel deilir einungis persónuupplýsingum með þriðja aðila þegar slíkt er nauðsynlegt til að vernda brýna hagsmuni hótelsins, eins og við innheimtu á vanskilakröfu. 

Persónuverndaryfirlýsing Landhótels nær ekki til upplýsinga eða vinnslu þriðja aðila en við höfum enga stjórn á né berum ábyrgð á notkun, birtingu eða öðrum verkum þeirra. Við hvetjum þig því til að kynna þér persónuverndaryfirlýsingar þriðju aðila, þ. á m. vefhýsingaraðilum þeirra síðna sem geta vísað á okkur, Borgun fjármálafyrirtæki í rafrænni greiðslumiðlun og hugbúnaðarfyrirtækja á borð við Facebook, Instagram og Google. 

Öryggi persónuupplýsinga og tilkynning um öryggisbrot

Öryggi í vinnslu persónuupplýsinga er Landhóteli mikilvægt og höfum við gripið til viðeigandi tæknilegra og skipulegra öryggisráðstafana til að tryggja vernd persónuupplýsinga þinna í takt við stefnu okkar um öryggi. Komi upp öryggisbrot er varðar þínar persónuupplýsingar, og teljist slíkt brot hafa í för með sér mikla áhættu fyrir frelsi og réttindi þín, munum við tilkynna þér um það án ótilhlýðilegrar tafar. Í þessum skilningi telst öryggisbrot atburður sem leiðir til þess að persónuupplýsingar þínar glatist eða eyðist, þær breytist, séu birtar eða óviðkomandi fái aðgang að þeim í leyfisleysi. Hér viljum við þó vekja athygli á því að þær persónuupplýsingar sem þú deilir með okkur á samfélagsmiðlum, t.d. Facebook síðu Landhótels teljast opinberar upplýsingar og ekki á forræði fyrirtækisins þar sem Landhótel hefur enga stjórn á slíkum upplýsingum né ber ábyrgð á notkun eða birtingu þeirra. Standi vilji þinn ekki til þess að deila þeim upplýsingum með öðrum notendum eða veitanda samfélagsmiðlaþjónustunnar skaltu ekki deila upplýsingum á samfélagsmiðlum okkar. Við hvetjum þig einnig til að kynna þér persónuverndaryfirlýsingar þessara aðila. Athugaðu að þegar þú ferð inn á Facebook síðu okkar, er mögulegt að Facebook komi fyrir vafrakökum í tæki þínu í greiningarskyni.

 

Réttindi þín

Með fyrirvara um þau skilyrði sem nánar er fjallað um í gildandi löggjöf um persónuvernd, þá átt þú rétt á að:

  • fá upplýsingar um hvaða persónuupplýsingar Landhótel hefur skráð um þig og uppruna þeirra, sem og upplýsingar um hvernig unnið er með persónuupplýsingar um þig
  • fá aðgang að þeim persónuupplýsingum sem eru unnar um þig, eða óska eftir að þær séu sendar til þriðja aðila
  • persónuupplýsingar þínar séu uppfærðar og leiðréttar ef tilefni er til
  • Landhótel eyði persónuupplýsingum þínum ef ekki er málefnaleg eða lagaleg skylda til að varðveita þær
  • koma á framfæri andmælum ef þú vilt takmarka eða koma í veg fyrir að persónuupplýsingar þínar séu unnar
  • upplýsingar um það hvort fram fari sjálfvirk ákvarðanataka, á hvaða rökum slík ákvarðanataka er byggð og endurskoðun á sjálfvirkri ákvarðanatöku
  • afturkalla samþykki þitt um að Landhótel megi safna, skrá, vinna eða geyma persónuupplýsingar þínar, þegar vinnsla byggist á þeirri heimild

 

Viljir þú nýta rétt þinn getur þú sent skriflega fyrirspurn á booking@landhotel.is 

Þú hefur einnig rétt  til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd sjáir þú ástæðu til þess. Upplýsingar um Persónuvernd má finna á heimasíðu stofnunarinnar, www.personuvernd.is.

 

Frekari upplýsingar

Ef þú vilt fá frekari upplýsingar um málefni sem snúa að þínum persónuupplýsingum þá bendum við þér á að hafa samband við skrifstofu Landhótels.

Landhótel
851 Hella
558 0550
booking@landhotel.is

 

Yfirferð og endurskoðun persónuverndaryfirlýsing Landhótels

Persónuverndaryfirlýsing Landhótels er endurskoðuð reglulega og uppfærð ef tilefni er til. Síðast var stefnan uppfærð þann 1.07.2019.